Skúlason Bílar sérhæfir sig í að finna draumabílinn fyrir þig, annast innflutning og koma draumabílnum í þínar hendur á góðu verði.
Ég heiti Árni Þór Skúlason og er stofnandi og eigandi af Skúlason Bílum (Skúlason ehf). Ég hef langa reynslu af sölu bifreiða og hef undanfarið einbeitt mér að bílainnflutningi. Ég bjó í Þýskalandi, þar sem ég kom mér upp góðum samböndum við erlenda aðila og get því auðveldlega aðstoðað þig við að finna rétta bílinn.
18 ára reynsla í innflutningi og sölu á bifreiðum til Íslands.
Ég hef unnið hjá nokkrum fyrirtækjum sem hafa sérhæft sig í innflutningi og sölu á bifreiðum, þar á meðal innflutningi á lúxusbifreiðum. Um árabil starfaði ég hjá Nýju Bílahöllinni og hef því góða þekkingu á íslenska bílamarkaðnum. Ég flutti mig síðan yfir í Bílaumboðið Öskju, þar sem ég annaðist sölu á nýjum KIA bifreiðum og síðar nýjum Mercedes-Benz bifreiðum. Þegar ég var við störf hjá Bílaumboðinu Öskju sótti ég nokkur námskeið á vegum Mercedes-Benz erlendis.
Mitt markmið er að veita þér persónulega og góða þjónustu og finna draumabílinn fyrir þig. Endilega hafðu samband, ég hlakka til að heyra frá þér.